contact
englishdeutschitaliano
link home

          Túrismi – hvernig við gerum þettat


          Prag – það sem við bjóðum


          Fyrir hópa


          Fótbolti í Prag


          Fararstjórar og aðstoðarmenn


          Líttu í kringum þig!


          (mjög) áríðandi upplýsingar


          Myndaalbúm Viandanti


Við bjóðum ferðamönnum sem koma til okkar beint og ferðaskrifstofum sem vilja nýta sér okkar úrræði fyrir eigin dagskrá eftirtalda þjónustu.

Hér finnur þú ýmsar tillögur og upplýsingar sem hjálpa þér við ferðaundirbúninginn.

Stuttur útdráttur úr upplýsingablaðinu okkar


 


          
Hvernig er best að komast hingað?
Það er ekkert áætlunarflug frá Íslandi beint til Prag og því gjarnan flogið í gegnum Kaupmannahöfn eða London. Það er líka hægt að fljúga beint á Berlín eða aðrar borgir í Þýskalandi og Austurríki og taka lest. Lestirnar eru misjafnlega lengi á leiðinni en hægt er að komast frá Berlín til Prag á fjórum og hálfum tíma.


Nauðsynlegir pappírar
Það er nauðsynlegt að hafa vegabréf. Þau þurfa að hafa gildistíma í þrjá mánuði frá komudegi til landsins. Börn þurfa að haga eigið vegabréf. Athugið þessar reglur í heimalandi ykkar.

 

Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn í Tékklandi er tékknesk króna eða koruna. Þrátt fyrir inngöngu í EB er ólíklegt að everan verði tekin upp fyrr en árið 2010. Núna er 1 tékknesk koruna u.þ.b. 2,3 íslenskar krónur. Þú ættir að varast að skipta peningum á flugvellinum, á hótelinu og á svokölluðum skiptistöðvum og auðvitað alls ekki á svarta markaðnum. Það er best að nota greiðslukort í hraðbanka eða kreditkort.

Glæpir
Prag er mjög örugg borg hvað varðar öryggi manns sjálfs; maður getur gengið nánast hvar sem er alveg öruggur. Þú ætti hins vegar að vera á varðbergi gagnvart vasaþjófum sem eru mjög margir á fjölförnustu götum og mörkuðum. Þeir eru snillingar í að nýta sér athyglisskort ferðamanna (oftst með því að valda einhverjum truflunum á meðan samstarfsaðili stelur). Suma er auðvelt að koma auga á en aðrir eru ótrúlega fagmannlegir í venjulegum fötum með myndavélar um hálsinn eins og hver annar ferðamaður. Passaðu bara upp á eigur þínar og þá geturðu komið í veg fyrir leiðindaatvik: augun opin, hafðu bakpoka og töskur að framan og ekkert veski í rassvasanum!

Innkaup

Tékkneskur kristall, raf og granat eru ásamt heimilisiðnaði og varningi frá tímum kommúnista helstu ferðamannavörurnar: þótt það sé ekki lengur hægt að gera jafn góð kaup eins og fyrst eftir fall múrsins þá er enn hægt að finna ákveðnar vörur á mjög góðu verði.


Matur og drykkur
Tékkneskur matur er mjög góður en nokkuð þungur enda samanstendur hann mikið til að ýmsu kjöti. Þeir sem eru fyrir sætindi geta glaðst: þeir sem borða sjaldan kjöt er mælt með að borða á ítölskum eða grænmetisveitingastöðum. Tékkland er paradís bjórdrykkjumannsins: mikil gæði, góður á bragðið á óviðjafnanlegu verði. Þjóðardrykkurinn er Becherovka, einhvers konar sætur heilsudrykkur sem fólki líkar misjafnlega.
 

Veður
Dæmigert meginlandsloftslag með köldum vetrum og heitum sumrum. Ekkert sérstaklega blautt. Þó nokkuð af snjó á vetrum
.

Weather
Typical continental climate, with long, cold winters and warm summers. Not particularly wet. In winter a fair deal of snow.

Tungumálið

Tékkneskan er slavneskt tungumál og líkist ekki íslensku, ensku eða þýsku hið minnsta. Þú munt væntanlega ekki skilja neitt en ekki örvænta, alla vega í þeim hlutum borgarinnar þar sem ferðamennirnir halda sig talar fólk ensku og/eða þýsku.

Barir

Það er einn bar fyrir hvern smekk

Hvað á að skoða?
Sem flest!!



^  top