contact
englishdeutschitaliano
link home

          Túrismi – hvernig við gerum þettat


          Prag – það sem við bjóðum


          Fyrir hópa


          Fótbolti í Prag


          Fararstjórar og aðstoðarmenn


          Líttu í kringum þig!


          (mjög) áríðandi upplýsingar


          Myndaalbúm Viandanti


Við útvegum gistingu af öllum gerðum: herbergi til leigu,farfuglaheimili, hótel, gistiheimili, íbúðir…

Við getum boðið sérstaklega gott úrval af möguleikum: við notum aðallega þó miðlanir sem ekki hafa verið ofnotaðar af erlendum ferðaskrifstofum og sem við höfum átt löng, persónuleg samskipti við.

 


        
Við ráðleggjum fólki alltaf að gista í sögulegu miðborg Prag svo þú getir notið hinnar raunverulegu Prag og svo einfaldlega til þæginda til að þú getir kynnst borginni hvernig svo sem dagskráin er.

Þægileg herbergi á hótelum og/eða höllum, hefðbundin og snyrtileg gistiheimili, lítil rómantísk hótel, glæsilegar íbúðir: allt í töfrandi andrúmslofti hinnar einstöku Prag (þú getur séð með eigin augum að það sem við erum að tala um er ekki bara billegt sölutrikk heldur bara staðreyndir um Prag eins og allir sem hér hafa verið vita).

Láttu okkur vita hvenær þú ætlar að vera hér og hvernig gistingu þú vilt og við munum senda þér nokkur tilboð á innan við sólarhring. Við teljum að við getum boðið þér þjónustu sem er peninganna virði. Gistingin er augljóslega grundvallaratriði.
Þegar þú ert búin að velja hana geturðu byrjað að ákveða hvernig væri best að nýta tímann; við getum ráðlagt þér með tilliti til hvaða áhugamál og smekk þú hefur.
 
        
- Veitingastaðir og barir til að kynnast hinu sérstaka tékkneska bragði eða öðrum þjóðarréttum

- Skipulagðar ferðir til að sjá bestu hliðar borgarinnar eftir hefðbundnum og nýjum leiðum með hæfu og viðkunnanlegu fólki sem eru í stakk búin til að svara öllum þínum spurningum.

- Ferðir út úr bænum í nokkra klukkutíma til að heimsækja hina miklu og glæsilegu kastala (Konopiste, Karlstejn,Nelahozeves………), fyrrverandi fangabúðir nasista í Terezin, krystalsverksmiðjur í nágrenni Prag, eða ef þú hefur aðeins meiri tíma, hina óviðjafnanlegu bæi með sínu sérstaka rómatíska andrúmslofti (Ceský Krumlov, Jindrichuv hrade, Telc, Trebic……. og aðeins lengra í burtu í Mæri, Mikulov, Lednice/Valtice, Olomoc). Svo er líka alveg eins hægt að fara í bátsferð á Moldá á allt frá skipum niður í fótstigna báta og árabáta.

- Verslunarferðir til að kaupa ýmsar tékkneskar vörur: Tékkneskan kristal, raf og granít eru dæmigerðust og vinsælust hjá ferðamönnum ásamt heimilisiðnaði og minjagripum frá tíð kommúnista: þótt það sé ekki lengur hægt að gera jafn góð kaup eins og fyrst eftir fall múrsins þá er enn hægt að finna ákveðnar vörur á mjög góðu verði.

- Söfn af öllum gerðum til að njóta listar í mismunandi umgjörð eða heimsækja kirkjur, leikhús, klaustur, bænahús gyðinga, garða, brýr, hallir, turna…

- Tónleikar og sýningar fyrir alla smekki og buddur; Prag er borg þar sem list er vel metin og býður hún breitt róf af möguleikum fyrir tónlistarunnandann (sígilda tónlist, jazz, nútímatónlist, þjóðlagatónlist….) Óperu (frá Verdi til Smetana, frá Bizet til Dvorak) og leiksýningar (sígildar og nútíma en helst þó Svartleikhús).

- Næturrölt um bæinn: Pöbbar, píanóbarir, diskótek, kasínó, klúbbar…



^  top