contact
englishdeutschitaliano
link home

          Túrismi – hvernig við gerum þettat


          Prag – það sem við bjóðum


          Fyrir hópa


          Fótbolti í Prag


          Fararstjórar og aðstoðarmenn


          Líttu í kringum þig!


          (mjög) áríðandi upplýsingar


          Myndaalbúm Viandanti




Reynsla okkar af ferðamannaiðnaðinum fékk okkur til að halda að við gætum boðið eitthvað mjög einfalt í þessum flókna geira.

Hvernig?

Í raun bara með því að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan sem að okkar mati hjálpa til við að fá verulega góða útkomu.


 


          
- Sleppa alltaf milliliðnum milli viðskiptavinarins og þjónustunnar þegar það er mögulegt (t.d. í löngu keðjunni milli ferðamanns/ferðaskrifstofunnar/ferðaskipuleggjandans/aðstoð á staðnum/þjónusta).

-- Gera þjónustuna persónulegri, eins mikið og hægt er, svo viðskiptavinurinn verði ekki að velja möguleika sem hann ekki vill á meðan við viðurkennum takmörk þess sem við getum boðið og gefum greinagóðar lýsingar á því eins og það í raun verður.
 - Vera í senn fagleg og þægileg í gegnum alla ferðina og leysa öll hugsanleg vandamál af alvöru og yfirvegun.
 
Hvernig tökum við á móti þér í Prag:
Við hittumst á umsömdum stað eins og t.d. á aðaljárnbrautastöðinni, rútubílastöð eða á tiltekinni neðanjarðarjárnbrautastöð, einhvers staðar þar sem bílar komast auðveldlega að, eða þar sem þú gistir, ef þú getur og ert svo heppinn að finna götuna!

Þegar við höfum gengið úr skugga um að allt sé viðunandi getum við rætt í meiri smáatriðum hvað þig langar til að sjá og gera. Við útvegum þér kort af borginni svo þú eigir auðveldara með að rata.

Þú munt fá okkar persónulega “upplýsingablað”, lítið en mjög gagnlegt kver sem inniheldur góð ráð, heimilisföng og upplýsingar sem hjálpa þér að varast brögðin og gildrurnar sem eru dæmigerð í öllum ferðamannaborgum eins og hvar er hægt að borða án þess að borga óþarflega mikið, hvar á að versla án þess að lenda í svindli, hvar á að skipta peningum á opinberu gengi, hvar er hægt að finna alla helstu staðina án þess að eyða tíma í að leita að viðbættum upplýsingum um sýningar sem standa yfir og svo frv.

Það er líka hægt að ná í okkur í síma allan sólarhringinn alla daga vikunnar og aðstoða þig með öll þau vandamál sem kunna að koma upp, lítil sem smá.

Það er ósk okkar að allir ferðamennirnir okkar séu eins ánægðir með fríið sitt eins og möulegt er og við gerum okkar besta til að leysa störf okkar vel af hendi. Við teljum að ánægja viðskiptavinarins sé besta auglýsingin fyrir okkur.

Hikaðu ekki við að hafa samband við okkur nú þegar. Viadanti Praghesi er að bíða eftir þér!





^  top